Balotelli með jöfn mörg mörk og spjöld í búningi City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2011 14:00 Mario Balotelli fær hér rautt á móti Liverpool. Mynd/Nordic Photos/Getty
Mario Balotelli getur spilað með Manchester City í dag þegar liðið mætir Norwich City í ensku úrvalsdeildinni en hann tók út leikbann í deildarbikarnum í vikunni eftir að hafa fengið rautt spjald á móti Liverpool um síðustu helgi. Guardian segir frá því að Roberto Mancini, stjóri Manchester City sé búinn að vara Balotelli við að hann geti varla treyst honum lengur í stóru leikina þar sem ítalski framherjinn er svo iðinn við að koma sér í vandræði hjá dómurunum. Rauða spjaldið hans Balotelli á móti Liverpool var hans þriðja á sextán mánuðum sem þykir mikið fyrir varnarmann hvað þá fyrir framherja. Mancini er viss um að City hefði unnið Liverpool hefði Balotelli haldið sér inn á vellinum. Mario Balotelli er frábær framherji og hefur skorað 19 mörk í 41 leik með Manchester City þar af 9 mörk í aðeins þrettán leikjum á þessu tímabili. Vandamálið er bara að strákurinn hefur á sama tíma fengið 16 gul spjöld og 3 rauð spjöld og er því með jöfn mörg mörk og spjöld í búningi City. „Ég vona að hann fari að hætta þessu. Varnarmaður getur gert mistök og fengið gult spjald en Mario er ekki varnarmaður. Hann er framherji og það er vanalega erfitt fyrir framherja að fá gult spajld. Ég sjálfur fékk aðeins eitt rautt spjald á tuttugu árum en var samt leikmaður sem setti pressu á dómarana. Mér líður eins og Mario sé búinn að fá þrjú rauð á tveimur vikum," sagði Roberto Mancini. „Mario verður að átta sig á því að hann er aðeins mikilvægur leikmaður fyrir okkur ef hann heldur sér inn á vellinum," sagði Mancini.
Mest lesið „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum Íslenski boltinn Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Íslenski boltinn „Vantar hjarta og baráttu í mína menn“ Fótbolti Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og þrír leikir í Bestu deild karla Sport Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Körfubolti Hörður í hóp eftir tæplega tveggja ára meiðsli Fótbolti Fleiri fréttir Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Klúður hjá Everton gegn Ipswich og langþráður sigur Leicester Vardy blés í flautu dómarans þegar hann féll við Leeds vann B-deildina en Plymouth og Luton féllu Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni De Bruyne sá til þess að meistararnir sluppu fyrir horn gegn Úlfunum Eigandi Chelsea þekkti ekki Ruud Gullit Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Beckham fimmtugur í dag Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Chelsea meistari sjötta árið í röð Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Sjá meira