Dalglish kom Suarez til varnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2011 10:45 Luis Suarez í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, var ekki ánægður með að stuðningsmenn Fulham hafi kallað Luis Suarez svindlara í leik liðanna í gær. Suarez hefur mátt þola ýmislegt á tímabilinu og ásakanir um að hann sýni leikaraskap inn á vellinum hafa verið algengar. Hann skoraði mark í leiknum í gær sem var dæmt af vegna rangstöðu og þá vildi hann fá vítaspyrnu nokkrum sinnum í leiknum, en án árangurs. Fulham vann svo leikinn, 1-0, með marki Clint Dempsey seint í leiknum. Liverpool var þá búið að missa Jay Spearing af velli með rautt spjald. Suarez var greinilega reiður áhorfendum því eftir leik gaf hann þeim puttann. „Þetta var hneyksli," sagði Dalglish um hróp og köll stuðningsmanna Fulham. „Við munum reyna að hugsa um Luis eins vel og mögulegt er en mér þætti viðeigandi ef ákveðinn hópur manna myndi byrja að veita honum ákveðna vernd." „Hann er afar heiðarlegur. Hann getur litið í spegilinn og verið sáttur við sjálfan sig. Ef aðrir geta gert það líka er það hið besta mál. Við biðjum bara um sanngirni."
Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Enski boltinn „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Enski boltinn Dagskráin: Geta Liverpool og Barcelona komið til baka í Meistaradeildinni? Sport Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal Enski boltinn Ancelotti gefur Neymar vonarglætu Fótbolti „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti „Það var mikil barátta og þeir geta alveg slegist“ Sport Vignir Vatnar einn á toppnum Sport Fleiri fréttir „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Sjá meira