Fjölskylda Gaddafís vill fá líkið - óvíst hvort krufning fari fram 22. október 2011 12:10 Múammar Gaddafí
Krufning á líki Muammars Gaddafis, fyrrum leiðtoga Líbíu, á að fara fram í dag í borginni Misrata. Fréttir eru hins vegar misvísandi af því hvort krufningin muni verði heimiluð af bráðabirgðastjórn uppreisnarmanna. Útför Gaddafis hefur verið frestað því bráðabirgðastjórn uppreisnarmanna kemur sér ekki saman um hvar og hvernig eigi að leggja hinn fallna leiðtoga til hinstu hvílu. Fjölmiðlum ber hins vegar ekki saman um hvort líkið verði krufið. Á vefsíðu breska dagblaðsins The Telegraph er haft eftir talsmanni bráðabirgðarstjórnar uppreisnarmanna, Fathi al-Bashaagha, að enginn muni kryfja Gaddafi. Hvorki í dag né nokkurn annan dag. Uppreisnarmennirnir sem handsömuðu Gaddafi neita að hafa drepið hann og virðast nú neita kröfu Sameinuðu þjóðana og mannréttindasamtaka um að krufning verði gerð svo læknisfræðileg niðurstaða á dánarorsök leiðtogans verði rannsökuð og opinberuð. Aðrir stórir fjölmiðlar fullyrða hins vegar að Gaddafi verði krufinn í dag. Sjónvarpsstöðin Al-rai, sem hefur verið miðill stuðningsmanna Gaddafis í átökunum, greindi frá því í morgun að fjölskylda Gaddafis vilji fá líkið afhent. Í því sem sagt er vera yfirlýsing frá fjölskyldu hans segir að kallað sé eftir stuðningi sameinuðu þjóðana, Amnesty, og bráðabirgðarstjórnarinnar til að tryggja að fjölskyldan fái líkið svo hægt sé að jarða það í samræmi við hefðir og reglur múslima. Þá virðist sem bráðabirgðarstjórnin geti enn ekki komið sér saman um hvernig eigi að hafa útför Gaddafis. Til greina kemur að jarða hann í heimabæ sínum, Sirte, Misrata, þar sem líkið er núna, eða fleygja líkinu í sjóinn á ótilgreindum stað til að sporna gegn því að gröf Gaddafis verði að einhverskonar helgidómi stuðningsmanna hans.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Fleiri fréttir Skæð hitabylgja velgir Evrópubúum undir uggum Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Skaut á slökkviliðsmenn úr launsátri Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Hitamet slegið á Spáni um helgina Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Twitter-morðinginn tekinn af lífi Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Sjá meira