Erlent

Lögreglan kölluð út til að róa farþega á Gatwick

Kalla þurfti lögreglu til á Gatwick flugvelli við London í gærdag til að hemja 200 æsta og reiða farþega flugvélar. Farþegarnir höfðu beðið í flugvélinni í níu tíma og voru orðnir sársvangir enda allur matur um borð uppurinn.

Vélin var að koma frá Mumbai og átti að lenda á Heathrow. Vegna veðurskilyrða var vélinni beint til Gatwick þar sem hún lenti um áttaleytið í gærmorgun. Á Gatwick þurfti að skipa um áhöfn en afleysingaáhöfnin villtist á leið til Gatwick og tók fleiri tíma að hafa upp á henni.

Lögreglunni tókst að róa farþegana og vélin hélt svo af stað til Heathrow um fimm leytið um daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×