Messaði yfir 100 þúsund manns undir berum himni 25. september 2011 11:53 Páfinn í Freiburg í morgun mynd/afp
Fjögurra daga heimsókn Benedikts sextánda páfa til heimalands síns, Þýskalands, lauk í morgun. Yfir hundrað þúsund manns sóttu messu sem páfinn hélt undir berum himni í borginni Freiburg í morgun. Margir lögðu mikið á sig til að sjá páfann með berum augum og ferðuðust langa vegalengd en yfir 25 milljónir Þjóðverja eru kaþólikar. Í ræðu sinni hvatti páfinn kaþólika til að halda áfram að rækta trú sína. Kaþólikar í Þýskalandi ættu hrós skilið fyrir þau góðu verk sem þeir hefðu unnið í landinu en þeir þyrftu að halda áfram að rækta samband sitt við Guð til að geta tekist á við viðfangsefni samtímans. Kirkjan og trúin stæðu nú á tímamótum og því væri nauðsynlegt að rækta trúnna. Heimsókn páfans hefur valdið vonbirgðum hjá mörgum kaþólikum sem segja að hann hafi farið fram úr sér þegar hann sagði að dræm ástundun kaþólika væri að eyðileggja kirkjuna í landinu. Mótmæli hafa verið á þeim stöðum sem hann hefur heimsótt en fjölmennustu voru í Berlín. Páfinn hefur á síðustu fjórum dögum meðal annars hitt einstaklinga sem hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun innan kirkjunnar. Hann mun hafa tekið fundinn með fórnarlömbunum mikið inn á sig og vottaði þeim og fjölskyldum þeirra samúð sína. Áður en Páfinn snýr aftur heim til Vatíkansins í kvöld mun hann snæða hádegisverð með trúarleiðtogum og hitta dómara frá þýska stjórnlagadómstólnum.
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira