Willum: Bárum virðingu fyrir Haukum Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 20. júní 2011 22:23 Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/HAG
Willum Þór Þórsson þjálfari Keflavíkur var að vonum ánægður með sigurinn og sætið í átta liða úrslitum Valitor bikarsins með 3-1 sigrinum á Haukum í kvöld og tók undir þau orð að byrjun liðsins í kvöld hafi gert gæfumuninn. „Ætli það hafi ekki verið þessi byrjun sem hjálpaði okkur í gegnum leikinn þegar upp er staðið því Haukarnir eru með fínasta fótboltalið og þeir áttu sína kafla í þessum leik. Á móti er ég ánægður með það að fyrst við náðum ekki fylgja þessari byrjun eftir, skora þriðja markið og gera út um leikinn, við fengum svo sannarlega færi til þess, að við héldum yfirvegun og ró á þeim kafla þegar þeir herja að okkur og náðum svo að setja þriðja markið sem gaf okkur trúna og færi á að spila þéttir út leikinn.“ Haukar fengu sín færi í leiknum og voru meira með boltann á löngum köflum en sköpuðu sér ekki mörg færi. „Ómar gerði gríðarlega vel í tvígang og þeir láta boltann rúlla vel Haukarnir og kunna ágætlega við sig hér á heimavelli. Ég sá þá á móti Skaganum og vissi að ef við yrðum þéttir myndu þeir koma út úr stöðum og það myndi gefa okkur færi á að setja þetta þriðja mark, við ræddum það í hálfleik.“ Willum var ánægður með að sínir menn skyldu mæta eins ákveðnir til leiks og raun bar vitni en hann óttaðist að þriggja vikna hlé frá síðasta leik hefði getið skemmt fyrir hans liði. „Við erum búnir að vera í langri leikja hvíld og maður sannast sagna var smeykur við að við yrðum smá ryðgaðir en við náðum að vega það upp með ferskleika og hugarfari í byrjun en við héldum ró og yfirvegun og vorum þéttir. Við nýttum okkur forskotið sem við náðum vel,“ sagði Willum. „Það er fullt af mjög frambærilegum fótboltamönnum í Haukaliðinu og það sást á Keflavíkurliðinu að við berum virðingu fyrir Haukum og vissum að þeir kæmu á okkur og við þyrftum að taka vel á móti,“ sagði Willum sem gat ekki leynt gleði sinni á að vera kominn út á völl á nýjan leik eftir hléið sem gert var á deildarkeppninni vegna EM U-21 árs landsliðsins. „Við viljum bara spila fótbolta á sumrin og nógu mikið af leikjum,“ sagði Willum að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Sjá meira