Umfjöllun: Værukærir Valsmenn teknir í bólinu Henry Birgir Gunnarsson á Vodafonevellinum skrifar 21. júní 2011 16:12
ÍBV er komið í átta liða úrslit Valitor-bikarsins í knattspyrnu eftir 2-3 sigur á Val á Vodafonevellinum í kvöld. Leikurinn var bráðfjörugur og skemmtilegur. ÍBV virtist ætla að slátra leiknum en Valur komst óvænt inn í leikinn og hefði hæglega getað jafnað. Fyrri hálfleikur var eign Eyjamanna frá a til ö. Þeir skoruðu þrjú góð mörk en Valsmenn komust inn í leikinn þökk sé gjafavíti frá arfaslökum dómara leiksins, Örvar Sæ Gíslasyni. 1-3 í hálfleik en allt annað var að sjá til Valsmanna í síðari hálfleik. Þeir minnkuðu muninn í upphafi síðari hálfleiks og voru óvænt komnir inn í leikinn þó svo þeir væru ekki búnir að gera nokkurn skapaðan hlut í leiknum. Við annað markið byrjuðu Valsmenn aftur á móti að spila fótbolta á sama tíma og Eyjamenn drógu sig inn í skel. Síðari hálfleikur var opinn og skemmtilegur en fleiri mörk komu ekki. Hörður Sveinsson fékk gullið færi í uppbótartíma en honum voru mislagðir fætur eins og svo oft áður í sumar. Það var ótrúlegt að fylgjast með værukærð Valsmanna í upphafi leiks. Þeir voru algjörlega meðvitundarlausir. Hægir að elta út um allan völl. ÍBV tókst að teyma varnarmenn liðsins aðeins fram á völlinn og refsaði síðan með því að koma boltanum inn fyrir vörnina. Á þeim tíma voru Eyjamenn afar hreyfanlegir og Valsmenn vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Allt annað var að sjá heimamenn í síðari hálfleik en þeir hófu leikinn allt of seint og slíkt má ekki gegn klassaliði eins og ÍBV sem spilaði frábæran fótbolta í fyrri hálfleik.Valur-ÍBV 2-3 0-1 Tryggvi Guðmundsson (8.) 0-2 Tryggvi Guðmundsson (14.) 0-3 Ian Jeffs (32.) 1-3 Guðjón Pétur Lýðsson, víti (41.) 2-3 Christian Mouritzen (49.) Áhorfendur: Ekki gefið upp. Dómari: Örvar Sær Gíslason 3. Skot (á mark): 10-8 (7-5) Varin skot: Haraldur 2 – Abel 5 Horn: 8-4 Aukaspyrnur fengnar: 9-11 Rangstöður: 4-1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Sjá meira