Ferguson í fimm leikja bann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. mars 2011 15:56 Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur verið úrskurðaður í fimm leikja bann fyrir ummælin sem hann lét falla um Martin Atkinson knattspyrnudómara. Hann þarf einnig að greiða 30 þúsund pund í sekt. Aganefnd enska knattspyrnusambandsins komst reyndar að þeirri niðurstöðu að dæma Ferguson í þriggja leikja bann en þar sem hann var á skilorði fyrir fyrri dóm bættust tveir leikir við. Ummælin lét hann falla eftir leik United gegn Chelsea sem síðarnefnda liðið vann, 2-1. Ferguson sagði að hann hefði óttast hið versta þegar hann sá hvaða dómari hafi verið settur á leikinn. „Maður vill fá dómara sem er sanngjarn eða að minnsta kosti góður. En slíkan dómara fengum við ekki,“ sagði Ferguson á sínum tíma. Ferguson var ósáttur við að David Luiz hafi ekki fengið að líta rauða spjaldið í leiknum sem og að Chelsea hafi fengið vítaspyrnu þegar að Chris Smalling var dæmdur brotlegur eftir viðskipti sín við Yuri Zhirkov. Bannið tekur gildi þann 22. mars næstkomandi og mun því Ferguson stýra sínum mönnum þegar að united mætir Bolton á heimavelli um helgina. Hann mun hins vegar missa af fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni, þar af mikilvægum leik gegn Arsenal í næsta mánuði, sem og leiknum gegn Manchester City í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. United er nú á toppi deildarinnar með 60 stig, þremur meira en Arsenal sem á leik til góða.
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira