Vaxandi andstaða við Chavez 1. febrúar 2010 03:00 Kona ber á pott í fararbroddi mótmæla í Caracas. Líklega þarf ekki að velkjast í vafa um hvaðan fyrirmyndin að þessu formi mótmæla er fengin.fréttablaðið/AÆ
Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur átt í vaxandi vandræðum undanfarið. Mótmælum hvers konar hefur fjölgað gegn þessum harða vinstrimanni sem lengst af ellefu ára valdatíð sinni átti miklum vinsældum að fagna meðal landsmanna. Óánægjuefnin eru mörg: mesta verðbólgan í Suður-Ameríku, æ tíðari rafmagnsleysistímabil, vaxandi ofbeldi í glæpaheiminum og bankahneyksli sem tengist æðstu stjórn landsins. Í síðustu viku streymdu dag eftir dag þúsundir manna út á götur í borgum landsins til að mótmæla lokun sjónvarpsstöðvarinnar RCTV, sem hafði ekki farið dult með andstöðu sína við forsetann. Þá sagði Ramon Carrizalez, aðstoðarforseti og varnarmálaráðherra landsins, af sér í vikunni, en sagði ástæður afsagnarinnar reyndar vera persónulegar. Verðbólgan í landinu er komin upp í 25 prósent þrátt fyrir ströng efnahagshöft og bitnar það illa á almenningi. Gengisfelling í janúar, sem ætlað var að auðvelda ríkinu að standa straum af nýjum útgjöldum, verður líklega til þess að hækka verðlagið enn frekar. Ofan á allt saman hefur framleiðsla olíuiðnaðarins, sem er undirstaða ríkisútgjaldastefnu forsetans, dregist saman, að hluta til vegna þess að skort hefur á nýjar fjárfestingar í greininni.- gb
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira