Markaþurrð Rooney veldur Sir Alex engum áhyggjum Elvar Geir Magnússon skrifar 26. desember 2010 18:31
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segist ekki hafa miklar áhyggjur þó Wayne Rooney gangi illa að finna leiðina að netinu. Rooney hefur ekki skorað fyrir United úr opnum leik síðan í mars og hann komst ekki á blað í dag þegar United vann 2-0 sigur á Sunderland. Hægt er að sjá svipmyndir úr leiknum í meðfylgjandi myndbandi. „Wayne átti nokkrar góðar tilraunir í dag," sagði Sir Alex eftir leik. „Hann var mjög óheppinn að ná ekki að skora. Þetta er allt að koma en mikilvægast er að hann er að spila vel. Það skiptir okkur miklu máli." Það er Dimitar Berbatov sem er að stela fyrirsögnunum en hann skoraði bæði mörkin í dag og er markahæstur í deildinni með þrettán mörk. United er á toppi deildarinnar og hefur ekki tapað í síðustu sautján leikjum. „Dimitar hefði getað skorað fjögur eða fimm mörk í dag. Hann fékk nokkur frábær færi. Það olli mér vonbrigðum að við náðum bara að skora eitt mark í fyrri hálfleiknum eftir að hafa átt skot í stöng og slá. Markvörðurinn þeirra varði í nokkur skipti mjög vel en við spiluðum mjög góðan fótbolta," sagði Sir Alex. Mike Phelan, aðstoðarstjóri Ferguson, hrósaði Anderson sérstaklega eftir leik en miðjumaðurinn brasilíski hefur verið að leika virkilega vel að undanförnu. „Hann átti margar frábærar sendingar og var sískapandi í sóknarleiknum. Hann komst nálægt því að skora þar að auki," sagði Phelan. Steve Bruce, knattspyrnustjóri Sunderland, viðurkennir að sínir menn hafi verið yfirspilaðir. „Kannski spiluðum við full neikvæðan fótbolta í dag. United spilaði frábærlega í fyrri hálfleik á meðan við vorum að elta skuggann af okkur," sagði Bruce eftir leik.
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn