Erlent

Uppbyggingin í Chile mun kosta minnst 3800 milljarða króna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sebastian Pinera sór embættiseið í gær. Mynd/ AFP.
Sebastian Pinera sór embættiseið í gær. Mynd/ AFP.
Sebastian Pinera, nýkjörinn forseti Chile, segir að uppbyggingin í landinu eftir jarðskjálftana þar muni kosta að minnsta kosti 30 milljarða bandaríkjadala. Upphæðin samsvarar 3800 milljörðum íslenskra króna.

Pinera segir að fjárlögin muni taka mið af uppbyggingunni og að tekin verði lán fyrir henni. Þá verði önnur ríki beðin um aðstoð.

Skjálftinn þann 27. febrúar síðastliðinn var 8,8 á Richter og varð 500 manns að bana. Hundruð misstu heimili sín.

Eftirskjálfti upp á 6,9 á Richter skók landið þegar að Pinera sór embættiseið í gær.

Pinera er fyrsti hófsami hægrimaðurinn sem nær völdum í Chile síðan að herstjórnin leið undir lok árið 1990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×