Íslenski boltinn

Umfjöllun: Yfirburðir Íslandsmeistaranna gegn Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
FH-ingar sýndu og sönnuðu í kvöld að það má aldrei afskrifa þá í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en þeir unnu afar sannfærandi 4-1 sigur á Fram á heimavelli.

Þeir Atli Guðnason, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson og Atli Viðar Björnsson skoruðu mörk FH í kvöld en í stöðunni 2-0 náði Almarr Ormarsson að minnka muninn fyrir þá bláklæddu.

Mörk Hafnfirðinga voru öll mjög lagleg og þeir sköpuðu sér þar að auki fjöldamörg færi til að bæta við mörkum. Þeir voru mun líklegri en Framarar til að bæta við fleiri mörkum í kvöld.

FH-ingar yfirspiluðu gestina úr Safamýrinni lengst af í leiknum. Það var helst að í lok fyrri hálfleiks og upphafi þess síðari að Framarar náðu að setja einhverja pressu á heimamenn. Það skilaði einu marki en var að vísu afar umdeilt þar sem FH-ingar vildu meina að það hafi verið brotið á varnarmanni liðsins skömmu áður en markið kom.

Framarar hafa áður verið 2-0 undir eftir fyrri hálfleik og náð að svara fyrir sig í þeim síðari og leit vissulega út fyrir að það gæti endurtekið sig í kvöld. En FH-ingar sáu mjög fljótt og vel til þess að svo yrði ekki. Þeir skoruðu þriðja markið fljótlega eftir að Fram minnkaði muninn og reyndist það rothöggið í leiknum.

Annan leikinn í röð misstu Framarar mann af velli með beint rautt spjald. Í þetta sinn var það fyrirliðinn Kristján Hauksson, sem er reyndar nýbúinn að taka út leikbann vegna fjögurra gulra spjalda, sem fauk af velli vegna pirringsbrots undir blálok leiksins. Alger óþarfi og gæti reynst Frömurum dýrkeypt.

FH-ingar spiluðu eins og sannir meistarar í dag og erfitt að taka út einstaka leikmenn. Leikmenn spiluðu einstaklega vel sín á milli og vörnin hélt lengst af mjög vel. Það eru sjálfsagt fá lið sem geta staðist FH-ingum snúning þegar þeir eru í þessum ham.

FH - Fram 4-1

1-0 Atli Guðnason (8.)

2-0 Pétur Viðarsson (30.)

2-1 Almarr Ormarsson (47.)

3-1 Björn Daníel Sverrisson (52.)

4-1 Atli Viðar Björnsson (64.)

Kaplakrikavöllur. Áhorfendur: 1.587

Dómari: Valgeir Valgeirsson (4)

Skot (á mark): 17-11 (7-6)

Varin skot: Gunnleifur 5 - Hannes 3

Hornspyrnur: 9-9

Aukaspyrnur fengnar: 13-16

Rangstöður: 1-3

FH (4-3-3):

Gunnleifur Gunnleifsson 6

Guðmundur Sævarsson 7

Pétur Viðarsson 7

Tommy Nielsen 6

(75. Freyr Bjarnason -)

Hjörtur Logi Valgarðsson 7

Björn Daníel Sverrisson 7

Bjarki Gunnlaugsson 7

(80. Hafþór Þrastarson -)

Matthías Vilhjálmsson 8 - maður leiksins

Ólafur Páll Snorrason 7

Atli Guðnason 8

(84. Einar Karl Ingvarsson -)

Atli Viðar Björnsson 7

Fram (4-5-1):

Hannes Þór Halldórsson 6

Jón Orri Ólafsson 5

Kristján Hauksson 5

Hlynur Atli Magnússon 4

(46. Daði Guðmundsson 5)

Sam Tillen 4

Halldór Hermann Jónsson 5

Jón Gunnar Eysteinsson 3

Kristinn Ingi Halldórsson 4

Ívar Björnsson 3

(46. Almarr Ormarsson 6)

Joe Tillen 4

Hjálmar Þórarinsson 3

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: FH - Fram.


Tengdar fréttir

Almarr: Okkar slakasti leikur í sumar

„Þetta var okkar slakasti leikur í sumar. Við gátum mjög lítið,“ sagði Almarr Ormarsson, leikmaður Fram, eftir tapleikinn gegn FH í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×