FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Smári Jökull Jónsson skrifar 4. október 2026 13:16 FH þarf á sigri að halda til að halda í við Breiðablik á toppi Bestu deildarinnar. Anton/Vísir FH vann öruggan 4-0 sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Kaplakrika í Bestu deild kvenna í dag. FH er þó áfram þremur stigum á eftir Breiðabliki í toppbaráttunni en tókst að laga markatölu sína með sigrinum stóra í dag. Sigur FH var sanngjarn og Nia Raisa Christopher fór mikinn í liði Hafnfirðinga og skoraði fernu. Helena Errington skoraði fjórða markið en staðan var orðin 4-0 eftir klukkutíma leik og sigurinn aldrei í hættu. Nia Christopher bætti fimmta markinu við í uppbótartíma og innsiglaði sigurinn. Lokatölur 5-0 FH í vil. Lengi leit út fyrir að sigur FH myndi tryggja þeim efsta sætið í deildinni en ótrúlegur viðsnúningur Breiðabliks gegn Þrótti í Kópavoginum gerir það að verkum að FH er enn þremur stigum á eftir Blikum þegar tvær umferðir eru eftir. Liðin mætast í lokaumferðinni og því enn von fyrir Hafnfirðinga. Uppgjör og viðtöl má lesa á Vísi innan skamms. Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna FH ÍBV