„Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Sindri Sverrisson skrifar 5. október 2026 07:02 Jesse Marsch er Bandaríkjamaður en stýrir landsliði Kanada. Getty/Omar Vega Jesse Marsch, landsliðsþjálfari Kanada, segir að Bandaríkjamenn séu aldir upp við þá hugmynd að þeir séu öðrum þjóðum fremri og eigi skilið sérmeðferð. Hann segir þetta meðal annars hafa birst í viðbrögðum við umdeildri ákvörðun FIFA á HM í fótbolta í sumar.
Marsch, sem er sjálfur Bandaríkjamaður en hefur stýrt kanadíska landsliðinu frá árinu 2024, ræddi málið í ítarlegu viðtali við The Guardian fyrir leik Kanada og Bandaríkjanna. „Áróðrinum hefur verið hellt yfir okkur Bandaríkjamenn frá unga aldri,“ sagði Marsch. Hann vísaði þar til þeirrar hugmyndar að Bandaríkin séu besta land heims og eigi að vera ráðandi á öllum sviðum. „Þannig að þegar hlutir gerast og okkur finnst við ekki hafa stjórn á þeim … þá finnst okkur við eiga skilið að komið sé öðruvísi fram við okkur vegna þess að við erum Bandaríkjamenn,“ sagði Marsch. Hann sagði þetta raunar vera það sem færi hvað mest í taugarnar á umheiminum varðandi Bandaríkjamenn. Vísaði til Balogun-málsins Marsch var sérstaklega spurður út í þá ákvörðun FIFA að ógilda rauða spjaldið sem Folarin Balogun fékk í útsláttarkeppni HM. Balogun gat þar með tekið þátt í næsta leik Bandaríkjanna og hefur þessi ákvörðun verið harðlega gagnrýnd. Marsch telur að sambærileg ákvörðun hefði vart verið tekin fyrir aðra þjóð. „Þetta hefði aldrei gerst hjá öðru landi í heiminum,“ sagði hann og bætti við að málið hefði sýnt hversu mikil áhrif Bandaríkin hefðu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hafa haft samband við Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna málsins. Infantino hefur hins vegar neitað því að símtalið hafi haft áhrif á ákvörðunina. Marsch segir málið hafa breytt umræðunni um Bandaríkin á einu augnabliki. „Þetta sannaði það. Bandaríkin höfðu átt gott HM og gengið vel. Allt það breyttist á einu augnabliki.“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin. Og Bandaríkjamenn vita það ekki ef þeir yfirgefa aldrei landið,“ sagði Marsch.
HM 2026 í fótbolta Fótbolti Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira