Líf heimastjórnar hangir á bláþræði 5. febrúar 2010 03:00 Gerry Kelly og Gerry Adams Aðalsamningafulltrúi Sinn Fein og formaður Sinn Fein, helsta stjórnmálaafls kaþólskra á Norður-Írlandi.Nordicphotos/AFP
Stífum tíu daga samningaviðræðum sambandssinna og lýðveldissinna á Norður-Írlandi lauk í gær þegar fulltrúar lýðveldissinna sögðu nóg komið. Sambandssinnar þurfa nú að taka afstöðu til málamiðlunartillögu, sem lýðveldissinnar hafa fallist á. Stjórnvöld á Bretlandi og Írlandi hafa haft forystu um samningaviðræðurnar, sem hófust 25. janúar síðastliðinn. Sinn Fein, helsta stjórnmálaafl hinna kaþólsku lýðveldissinna, hefur krafist þess að nýtt ráðuneyti dómsmála verði stofnað innan heimastjórnar Norður-Írlands. Nýja ráðuneytið myndi fá það hlutverk að hafa yfirumsjón með dómstólum og lögreglu á Norður-Írlandi. Sinn Fein hefur hótað því að segja sig úr heimastjórninni og þar með líklega gera að engu friðarsamkomulagið frá 1998 fallist sambandssinnar ekki á þetta fyrirkomulag. Sambandssinnar, sem flestir eru mótmælendatrúar, hafa hins vegar ekki viljað fallast á þetta. Vandamálið er að flokkar sambandssinna í heimastjórninni eru klofnir í afstöðu sinni. Ástæða klofningsins er meðal annars sú, að margir hófsamir sambandssinnar telja óráðlegt að láta undan kröfum lýðveldissinna á kosningaári af ótta við að tapa atkvæðum til harðlínumanna. „Viðræðunum er lokið,“ sagði Gerry Kelly, aðalsamningafulltrúi Sinn Fein í gær. „Samninganefnd okkar telur að við séum komin með grundvöll til þess að þoka málunum áfram.“ Umsjón löggæslu og dómsmála á Norður-Írlandi hefur verið í höndum Breta, en kaþólskir hafa gert kröfu um að stjórn þeirra verði færð í hendur heimamanna. Ríkisstjórnir Bretlands, Írlands og Bandaríkjanna hafa stutt það, í þeirri von að við þá breytingu aukist almennur stuðningur meðal kaþólskra við lögreglu og dómstóla. Mótmælendur hafa hins vegar beitt neitunarvaldi sínu, ekki síst af ótta við að fyrrverandi liðsmenn Írska lýðveldishersins fái að taka þátt í stjórn þessa málaflokks. Þegar friðarsamkomulagið var gert fyrir nærri tólf árum höfðu kaþólskir lýðveldissinnar þá barist áratugum saman hatrammri baráttu fyrir aðskilnaði Norður-Írlands frá Bretlandi og helst sameiningu við Írland. Þau átök kostuðu um 3.700 manns lífið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira