Arsene Wenger vill ekki að Wilshere spili á EM næsta sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. desember 2010 08:00 Jack Wilshere. Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur varað enska knattspyrnusambandið við að taka Jack Wilshere með á EM 21 árs landsliða næsta sumar. Hann segir að hans maður þurfi hvíld næsta sumar eftir erfitt tímabil. Enska 21 árs landsliðið er eitt átta landa sem á lið á EM 21 árs liða en þar á meðal er Ísland. England er í riðli með Úkraínu, Spáni og Tékklandi en Ísland er í riðli með Danmörku, Sviss og Hvíta-Rússlandi. Wenger vill passa upp á álagið á sinn strák sem hefur fengið stórt hlutverk hjá honum í Arsenal-liðinu á þessu tímabili þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall. Jack Wilshere hefur skorað 2 mörk og gefið 7 stoðsendingar í 21 leik fyrir Arsenal á tímabilinu en hann hefur þegar spilað í 1553 mínútur á leiktíðinni. „Í fyrsta lagi þarf enska sambandið á ákveða það hvort leikmaður sé A-landsliðsmaður eða í 21 árs landsliðinu. Það er mín persónulega skoðun að leikmaður, sem hefur verið með A-landsliðinu en kemur síðan niður í 21 árs landsliðið, eigi alltaf í vandræðum með að ná fram sínu besta. Það er mín reynsla," sagði Wenger. „Í öðru lagi þurfa menn að setjast niður í lok tímabils og skoða hversu marga leiki Wilshere hefur spilað á tímabilinu áður en menn láta hann spila á EM. Strákurinn vill spila og það er jákvætt. Það mun samt aldrei ganga að spila með Arsenal fram í júní og fara síðan að spila á EM í framhaldinu af því. Leikmaður sem er aðeins átján ára gamall og hefur spilað yfir 40 leiki á tímbilinu, þarf á hvíld að halda í júní," sagði Wenger.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira