Tvö sjálfsmörk hjá Leeds Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. desember 2010 18:35 Kasper Schmeichel, markvörður Leeds. Nordic Photos / Getty Images
Leeds tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni í ensku B-deildinni í dag er liðið gerði 3-3 jafntefli við Portsmouth. Leeds var komið í 2-0 eftir tíu mínútna leik með mörkum Max Gradel og Jonathan Howson. David Nugent minnkaði muninn fyrir Portsmouth á 33. mínútu en Bradley Johnson kom Leeds í 3-1 á 62. mínútu. Aðeins mínútu síðar varð Andy O'Brien fyrir því óláni að skora sjálfsmark og hann gerði slíkt hið sama í blálok leiksins. Niðurstaðan því svekkjandi jafntefli fyrir gamla stórveldið en liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 40 stig, rétt eins og Cardiff og Swansea sem eru í 2.-3. sæti. Hermann Hreiðarsson var á bekknum hjá Portsmouth og kom ekki við sögu. Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson voru ekki í leikmannahópi Reading sem gerði 1-1 jafntefli við Hull í sömu deild. QPR, lið Heiðars Helgusonar, er á toppi deildarinnar með 47 stig eftir 2-0 sigur á Coventry í hádeginu í dag. Huddersfield tapaði fyrir Southampton, 4-1, í ensku C-deildinni í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem varamaður í fyrrnefnda liðinu þegar 20 mínútur voru til leiksloka. Kári Árnason lék allan leikinn fyrir Plymouth sem gerði 1-1 jafntefli við Notts County. Þá var leik Hartlepool og Leyton Orient frestað en Ármann Smári Björnsson leikur með fyrrnefnda liðinu. Huddersfield er í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig, Hartlepool í því ellefta með 29 og Plymouth í 15. sæti með 26 stig.
Enski boltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Fótbolti Jóhann Kristinn Gunnarsson: ,, Við þurfum að gera eitthvað róttækt í málunum” Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Fleiri fréttir Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Sjá meira