Erlent

Ísraelsk herskip umkringja flutningaskip á leið til Gaza

Ísraelsk herskip hafa umkringt flutningaskip með hjálpargögn á leið til Gaza.

Skipið, sem skráð er í Moldóvíu er á vegum lýbísku góðgerðarsamtakanna Gaddafi Foundation en þeim er stjórnað af syni Muammar Gaddafi leiðtoga Lýbíu.

Samkvæmt frétt á BBC leikur vafi á hver sé endanlegur áfangastaður skipsins því samkvæmt fyrri fréttum af siglingu skipsins hafði náðst samkomulag við skipstjórann um að skipið myndi leggja upp í Egyptalandi.

Haft er eftir talsmanni ísraelskra stjórnvalda að skipið eigi við vélarbilun að glíma og hafi ferð þess stöðvast af þeim sökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×