Íslenski boltinn

Umfjöllun: Blikar loksins á toppinn

Stefán Pálsson skrifar

Blikar  komu sér í kvöld á topp Pepsi-deildar karla með góðum 3-1 sigri á nýliðum Selfoss  í tíundu umferð Pepsi-deildar karla.

Fyrir leiki kvöldsins í  Pepsi-deildinni  voru Selfyssingar í tíunda sæti með 7 stig, en Blikar þriðja sæti með 17 stig. Með sigri gátu Blikar komist í efsta sæti Pepsi-deildarinnar í fyrsta skipti í langan tíma og því var  til mikils að vinna fyrir gestina. Heimamenn máttu alls ekki við tapi þar sem þeir berjast óðum við að halda sæti sínu í efstu deild.

Leikurinn hófst heldur rólega en það voru Blikar sem byrjuðu betur og virtust ætla taka öll völd á vellinum. Fyrsta korterið af leiknum voru  Selfyssingar ekki mættir til leiks en þeir komust lítið í takt við leikinn. 

Engu að síður voru það heimamenn sem fengu fyrsta færi leiksins sem kom á 21.mínútu leiksins.  Þá komst Sævar Þór Gíslason  inn fyrir vörn Blika og átti fínt skot rétt framhjá. Það má segja að með því skoti hafi Selfyssingar mætt til leiks.

Liðin skiptust síðan á að sækja og fengu nokkur góð færi, en það voru gestirnir sem náðu að brjóta ísinn með marki nokkrum sekúndum fyrir lok fyrri hálfleiks. Kristinn Steindórsson skoraði  virkilega flott mark eftir fína hornspyrnu frá Kristni Jónssyni.

Selfyssingar hefðu ekki getað fengið mark á sig á verri tíma því Jóhannes Valgeirsson, dómari leiksins, flautaði til hálfleiks strax eftir markið og því staðan 0-1 í hálfleik.

Blikar létu heldur betur kné fylgja kviði og komu sterkir út í síðari hálfleikinn. Það virtist sem svo að Selfyssingar væru ekki enn búnir að ná sér eftir markið.

Þvert gegn gangi leiksins náðu Selfyssingar að jafna metin á 57.mínútu.  Skelfileg varnarmistök hjá Kára Ársælssyni , varnarmanni Blikar, urðu þess valdandi að Einar Ottó Antonsson náði boltanum og skoraði flott mark fyrir Selfyssinga.

Blikar létu markið ekki trufla sinn leik og náðu að komast yfir tíu mínútum síðar en þar var að verki framherjinn Guðmundur Pétursson, en hann skoraði einkar fallegt mark með skoti rétt fyrir utan vítateig.

Aðeins einni mínútu síðar fékk Sævar Þór Gíslason , fyrirliði Selfyssinga, algjört dauðafæri en á einhvern óskiljanlegan hátt renndi hann boltanum framhjá markinu.

Síðustu 20 mínútur leiksins voru algjörlega eign gestanna og náðu þeir að bæta við þriðja markinu rétt fyrir leikslok. Þá var Kristinn Steindórsson aftur mættur en hann kórónaði leik sinn með öðru marki og kom Blikum á toppinn í Pepsi-deild karla.

Selfoss - Breiðablik 1-3

0-1 Kristinn Steindórsson (46.)

1-1 Einar Ottó Antonsson (57.)

1-2 Guðmundur Pétursson (66.)

1-3 Kristinn Steindórsson (90).

Selfossvöllur - Áhorfendur: 1023

Dómari: Jóhannes Valgeirsson 8

Skot (á mark): 9-8 (4-4)

Varin skot: Jóhann 2– Ingvar 3

Horn: 4-8       

Aukaspyrnur fengnar  14-9

Rangstöður  0-5

Selfoss (4-4-2):

Jóhann Ólafur Sigurðsson 6

Guðmundur Þórarinsson 6

Agnar Bragi Magnússon 6

Kjartan Sigurðsson 6

Ingólfur Þórarinsson 5

(73. Ingþór Jóhann Guðmundsson  -)

Einar Ottó Antonsson 7

Jón Guðbrandsson  5

Jón Daði Böðvarsson 5

Jón Steindór Sveinsson 6

(87. Ingi Rafn Ingibergsson - )

Daði Birgisson  6

Sævar Þór Gíslason 5

(73. Viðar Örn Kjartansson  - )

Breiðablik 4-4-2

Ingvar Kale 6

Kristinn Jónsson 7

Kári Ársælsson 5

Finnur Orri Margeirsson 6

Arnór Sveinn Aðalsteinsson 7

Olgeir Sigurgeirsson 6

Guðmundur Kristjánsson 5

(81. Árni Kristinn Gunnarsson -)

Jökull Elísabetarson 5

Alfreð Finnbogason 5

Guðmundur Pétursson 5  

(81. Andri Rafn Yeoman - )

Kristinn Steindórsson 8 – Maður leiksins



Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: Selfoss - Breiðablik.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×