Wenger ánægður með Szczesny Elvar Geir Magnússon skrifar 14. desember 2010 12:00
Þrátt fyrir að Manchester United haldi áfram að hafa tak á Arsenal gat þó Arsene Wenger, stjóri Arsenal, glaðst yfir einhverju í gær. Pólski markvörðurinn Wojciech Szczesny stóð sig vel í sínum fyrsta deildarleik. Það má segja að Szczesny hafi verið kastað í djúpu laugina en þessi tvítugi leikmaður hafði aðeins leikið tvo deildabikarleiki fyrir Arsenal þegar kom að þessum toppslag ensku úrvalsdeilarinnar. „Markvörðurinn gerði vel. Hann var stressaður þegar hann fékk boltann í lappirnar en að öðru leyti er ekkert hægt að kvarta yfir honum," sagði Wenger en Szczesny varði til að mynda frábærlega frá Anderson í leiknum. „Þetta var vissulega stórleikur en í þessu starfi geturðu ekki hugsað til þess, þú verður að huga að gæði leikmanna. Allir bestu markverðir heims byrjuðu að spila í kringum tvítugt. Edwin van der Sar var farinn að leika stóra leiki 18 ára." Wenger gaf sér líka tíma til að hrósa Ji-Sung Park, leikmanni Manchester United. Park skoraði eina mark leiksins og segir Wenger að hann minni sig mikið Freddie Ljungberg þegar hann var upp á sitt besta.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira