Sendiherra Ísraels kallaður á fund utanríkisráðuneytis Breta 17. febrúar 2010 20:47 Morðingjarnir þrír sem voru með bresk vegabréf.
Sendiherra Ísraels í Bretlandi hefur verið boðaður á fund í utanríkisráðuneytinu þar í landi vegna launmorðs í Dubai á dögunum þar sem ellefu einstaklingar eru grunaðir um að hafa myrt Hamas-leiðtogann Mahmoud al-Mabhouh. Morðið hefur frekar óraunsæjan blæ en ellefu einstaklingar með fölsuð vegabréf, meðal annars bresk, flugu til Dubai á dögunum. Fólkið kom með tveimur flugvélum og skráðu sig inn á tvö mismunandi hótel. Aðeins fimm tímum eftir að morðsveitin lenti í Dubai var Mabhoud myrtur á hótelherberginu sínu. Ekki hefur verið upplýst hvernig hann var myrtur. Vitað er að hann var kæfður. Morðsveitin yfirgaf Dubai stuttu síðar en meðlimir sveitarinnar voru ekki í sólarhring í landinu. Í kjölfarið héldu lögregluyfirvöld í Dubai blaðamannafund þar sem morðingjarnir voru myndbirtir og nöfn þeirra gerð opinber. Í ljós kom að morðsveitin ferðaðist með stolin vegabréf. Meðal annars var eitt þeirra í eigu bresks ríkisborgara sem nú óttast hefndaraðgerðir Hamas-liða þrátt fyrir að hann kom þar engu nærri. Breskir stjórnmálamenn hafa því þrýst á kollega sína að upplýsa um málið. Aftur á móti er ekki ljóst hver var að verki en almennt er talið að hermenn á vegum hinnar alræmdu Mossad-leyniþjónustu hafi framið ódæðið. Ísraelsk stjórnvöld hafa hinsvegar ekki viljað tjá sig um málið, hvorki til staðfestingar né hafa þeir neita sök. Í skugga pólitísks þrýstings í Bretlandi hefur utanríkisráðuneytið þar í landi kallað Ron Prosser, sendiherra Ísraels í Bretlandi, á fund utanríkisráðuneytisins á næsta fimmtudag. Verður hann spurður hvort ísraelsk stjórnvöld tengist á einhvern hátt ódæðinu í Dubai. Stjórnmálamenn í Bretlandi telja mikinn misbrest á samskiptum þjóðanna að ræða hafi þeir sent morðingja sína með bresk vegabréf í slíkan leiðangur. Hafi ísraelska leyniþjónustan verið að verki þá er þetta langt því frá fyrsta launmorðið sem framið er á hennar vegum. Þegar er orðið frægt þegar leigumorðingjasveit á vegum Mossad var gerð út eftir Ólympíuleikana í Munchen árið 1972. Þá myrtu Palestínumenn ísraelska Ólympíufara eftir misheppnaða gíslatöku. Morðsveit Mossad elti uppi hryðjuverkamennina sem áttu hlut að máli og voru þeir næstum allir myrtir í aðgerð sem bar nafnið „Reiði guðs". Þeir sem komust undan þrautþjálfuðum leigumorðingjum leyniþjónustunnar fóru allir í felur þar sem þeir eru enn.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Sjá meira