Stærsta stífla heims heldur flóðum í skefjum 22. júlí 2010 06:00 Metmagni vatns var hleypt úr stíflunni í gær, en rennslið var 40 þúsund rúmmetrar á sekúndu.
Þriggja gljúfra stíflan í Yangtze-fljótinu í Kína hefur náð að koma í veg fyrir gríðarlegt mannfall og tjón vegna flóða á svæðinu. Rennslið um ána nær 70 þúsund rúmmetrum á sekúndu og hefur aldrei verið meira. 700 eru látnir vegna flóða á árinu. Sjö hundruð manns hafa látið lífið í flóðum og aurskriðum í Kína það sem af er árinu og 347 manna er saknað. Flóðin eru þau verstu frá árinu 1998, þegar um fjögur þúsund manns létust og átján milljónir misstu heimili sín. Þriggja gljúfra stíflan í Yangtze-ánni í Kína, sem er lengsta fljót í Asíu, stendur nú frammi fyrir mestu flóðavörnum frá því að hún var kláruð árið 2008. Vatnsyfirborð ofan við stífluna hefur hækkað gríðarlega í miklum rigningum undanfarinna vikna og hækkaði síðast um fjóra metra á einum sólarhring. Vatnsrennslið varð mest 70 þúsund rúmmetrar á sekúndu, en stíflan ræður við tæplega 99 þúsund rúmmetra á sekúndu. Stíflan virðist vera að ráða við flóðavarnirnar en hún sleppir um 40 þúsund rúmmetrum af vatninu út í ána fyrir neðan stífluna á sekúndu, til þess að lágmarka skaðann af flóðunum. Það hefur hingað til tekist, þar sem tekist hefur að hlífa stórum svæðum við ána sem hefðu án stíflunnar farið undir vatn. Óttast hefur verið að stíflan bresti vegna álagsins, sem hefur aldrei verið meira, en ef slíkt gerðist myndi það valda gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni á svæðinu. 75 prósent héraða landsins hafa að einhverju leyti orðið fyrir skaða vegna flóðanna. Þá hafa 25 ár í landinu náð methæð í rigningum síðustu vikna. Regntímabilinu er ekki lokið og er því hætt við því að flóðin haldi áfram um sinn. Flóðavarnir voru notaðar sem ein helstu rökin fyrir því að stíflan yrði byggð árið 2003, en hún kostaði Kínverja 27,2 milljarða dollara. Stíflan er sú stærsta í heiminum og var mjög umdeild þar sem bygging hennar krafðist brottflutnings 1,4 milljóna manna. Af þeim 701 sem hefur látist vegna flóða og aurskriða á árinu hafa 187 látist á síðustu tveimur vikum. Einnig er 173 saknað. Yfir 35 milljónir manna í landinu hafa orðið fyrir röskun vegna veðursins og 1,2 milljónir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna þeirra. Flóðin hafa kostað 21 milljarð dollara frá áramótum. Hrísgrjónauppskera gæti dregist saman um tíu prósent og sú tala gæti farið upp í tuttugu prósent á sumum svæðum.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Fleiri fréttir Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Sjá meira