Enski boltinn

Leikmenn standa með Grant

Elvar Geir Magnússon skrifar

Junior Stanislas, miðjumaður West Ham, segir að leikmenn liðsins standi við bakið á knattspyrnustjóranum Avram Grant. Hamrarnir eru í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og fékk Grant þau skilaboð þess efnis í síðustu viku að hann þyrfti að vinna einn af þremur næstu leikjum til að forðast brottrekstur.

„Allur hópurinn stendur við bakið á honum," segir Stanislas sem skoraði jöfnunarmark West Ham gegn Blackburn í gær. „Allir verða að standa saman á þessum erfiðu tímum. Trúin er til staðar. Við teljum að við getum komið okkur úr þessari stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×