Erlent

Loftbelgsdrengur fundinn heill á húfi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óttast var um tíma að drengurinn væri í loftbelgnum. Mynd/ AFP.
Óttast var um tíma að drengurinn væri í loftbelgnum. Mynd/ AFP.
Sex ára gamall drengur sem óttast var að hafi verið um borð í loftbelg sem losnaði og fór yfir Coloradofylki er fundinn heill á húfi, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar.

Systkini drengsins fullyrti að hafa séð hann fara í belginn en belgurinn losnaði og fór svo á loft. Fullyrt er að drengurinn hafi orðið hræddur þegar hann áttaði sig á því að hann varð valdur að því að belgurinn fór á loft og falið sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×