Erlent

Myrti andstæðinga og jók áhorf á eigin þátt

Wallace Souza.
Wallace Souza.

Brasilíski sjónvarpsmaðurinn Wallace Souza gaf sig fram til lögreglunnar í dag en hann hefur verið sakaður um að vera fíkniefnasali, auk þess sem hann á að hafa myrt keppinauta sína í fíkniefnaheiminum.

Souza er frægur sjónvarpsmaður auk þess sem hann var kjörinn fulltrúi í Amazon fylki í Brasilíu. Því var hann friðhelgur fyrir öllum ákærum þangað til fyrir mánuði síðna. Þá var hann sviptur pólitískri stöðu sinni og friðhelginni þar með.

Málið hefur vakið heimsathygli. Á fréttavef BBC kemur fram að Lögregluna hafi farið að gruna Souza um græsku þegar tökumenn á hans vegum komu á morðvettvang ítrekað á undan lögreglunni.

Lögreglan varð endanlega sannfærð þegar þeir sáu frétt sem sýndi logandi lík fíkniefnasala í skógi einum.

Sjálfur vill Souza meina að pólitískir andstæðingar séu að reyna koma á hann höggi.

Fram kemur í frétt BBC að Souza hafi ekki eingöngu myrt andstæðinga sína í fíkniefnaheiminum, heldur hafi hann reynt að bæta áhorfstölur á þátt sinn í leiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×