Varað við ferðum til Vesturheimslanda 28. apríl 2009 05:00 Á Taívan gripu menn til þess ráðs að sprauta sótthreinsandi efni yfir svín til að draga úr smitlíkum. nordicphotos/AFP
Að minnsta kosti 73 manns höfðu smitast af svína-flensu í gær, svo staðfest væri. Vitað er um 40 smit í Bandaríkjunum, sex í Kanada og eitt á Spáni. Grunur leikur þó á að smitið hafi borist í mun fleiri. Verst er ástandið í Mexíkó, þar sem flensan virðist hafa átt upptök sín. Þar er talið að rúmlega 1.600 manns hafi smitast og þar af nærri 150 látist af völdum veirunnar. Norska dagblaðið Verdens Gang skýrði auk þess frá því á vefsíðum sínum í gær að tveir menn, nýkomnir frá Mexíkó, hafi verið lagðir inn á sjúkrahús í norðanverðum Noregi vegna gruns um svínaflensusmit. Þeir hafi fengið einkenni flensunnar stuttu eftir heimkomuna. Fjöldi manns hætti við ferðalög til Mexíkó og flugfélög hafa mörg hver ákveðið að innheimta ekki annars hefðbundin gjöld fyrir að afturkalla flugmiða þangað. Víða um heim var settur upp viðbúnaður á flugvöllum til þess að kanna hvort ferðafólk frá Mexíkó og Norður-Ameríku hafi hugsanlega orðið fyrir smiti. Í Rússlandi, Hong Kong og Taívan gengu stjórnvöld svo langt að segja að ferðafólk frá þessum slóðum yrði sett í sóttkví. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hafði í gær ekki tekið afstöðu til þess hvort hækka ætti viðbúnaðarstig vegna svína-flensunnar úr 3 í 4 eða jafnvel 5. Það fer eftir því hve auðveldlega veiran smitast á milli manna. Androulla Vassiliou, sem fer með heilbrigðismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, varaði fólk í gær við að ferðast til Vesturheims, en dró síðar aðeins úr orðum sínum: „Ég átti við ráðleggingar til ferðamanna, ekki ferðabann,“ sagði hún. Eftirlit var einnig hert á landamærum Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði ástæðu til þess að sýna aðgát, en þó væri engin ástæða til að fyllast ofsahræðslu.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira