Frímúrarar í skýjunum með Dan Brown Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. september 2009 08:12
Svo virðist sem rithöfundinum Dan Brown hafi tekist að rita skáldsögu án þess að reita til reiði þá sem hún fjallar um. Talsmenn kaþólsku kirkjunnar ruku upp til handa og fóta yfir DaVinci-lyklinum á sínum tíma og ekki voru menn heldur ánægðir hjá Opus Dei-hreyfingunni sem er kaþólsk. Aftur blossuðu upp deilur þegar bókin Englar og djöflar var kvikmynduð og var hún meðal annars bönnuð af kaþólikkum á Samóaeyjum en Vatíkanið lagði þó að lokum blessun sína yfir hana og kallaði saklausa skemmtun. Nýjasta bók Brown, The Lost Symbol, sem mun væntanlega hljóta þýðinguna Týnda táknið, hefur hins vegar vakið mikla hrifningu hjá þeim hópi sem hún fjallar um en það eru frímúrarar. Greg Levenston, meistari frímúrarareglu í New South Wales í Ástralíu segir nýju bókina síður en svo koma sér illa fyrir reglubræður heldur þvert á móti gefi hún frímúrarareglum nýtt tækifæri til að opna sig og kynna sig betur. Reglubræður Levenstons eru svo spenntir að þeir ætla að stofna bókaklúbb innan reglunnar og byrja að sjálfsögðu á því að taka The Lost Symbol fyrir. Byrjunarupplag bókarinnar verður sex og hálf milljón eintaka sem er það stærsta sem útgefandinn Random House hefur sent frá sér í einu lagi.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sjá meira