Meintur 14 barna faðir vill DNA-próf Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. febrúar 2009 08:14 Denis Beaudoin. MYND/Dailycontributor.com
Fyrrverandi kærasti konunnar, sem eignaðist áttbura í lok janúar, segist hugsanlega vera faðir 14 barna hennar og fer fram á faðernispróf. Hinn fjórtánfaldi faðir, ef satt reynist, heitir Denis Beaudoin og sagðist í viðtali við ABC-sjónvarpsstöðina í gær hafa gefið ofurmóðurinni Nadyu Suleman sæði úr sér meðan á sambandi þeirra stóð á ofanverðum tíunda áratug síðustu aldar. Nadya hafi þá tjáð honum að hún hefði krabbamein í eggjastokkum og yrði að hafa snör handtök ætlaði hún sér að eignast börn. Þau hafi svo í framhaldinu heimsótt sjúkrahús sem aðstoðaði þau við að hrinda ætlunarverkinu í framkvæmd. Það hafi hins vegar flækt málin að Beaudion hafi verið kvæntur annarri konu meðan á sambandi þeirra Suleman stóð. Fyrir liggur í málinu að áttburarnir sem Suleman eignaðist í janúar og sex börn, sem hún átti fyrir, hafi orðið til við tæknifrjóvgun þar sem notað var sæði óþekkts sæðisgjafa. Beaudoin segist nú vilja fá það á hreint með aðstoð vísindanna hvort börnin séu afkomendur hans og lái honum hver sem vill. Hver vill svo sem ekki fá það á hreint hvort hann eigi 14 börn eða ekki?
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira