Innlent

Svínaflensan: Þrjátíu einstaklingar verið rannsakaðir hér á landi

MYND/GVA

Hátt í þrjátíu einstaklingar hafa verið rannnsakaðir hér á landi þar sem grunur hefur leikið á að þeir væru með svínaflensu. Enginn hefur þó reynst vera smitaður. Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir í samtali við fréttastofu. Um er að ræða fólk sem nýkomið er frá Bandaríkjunum eða Mexíkó en einnig fólk sem hefur sýnt ákveðin flensueinkenni og því hefur þótt rétt að rannsaka hvort um svínaflensu væri að ræða.

Haraldur segir að þrátt fyrir að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hafi aukið hættustig vegna faraldursins hafi það ekki í för með sér breytingu á viðbúnaðarstigi hér á landi. Að sögn Haralds hefur verið gríðarlega mikið álag á embættinu síðustu daga þar sem fólk vill fá upplýsingar um inflúensuna og útbreiðslu hennar.

Í flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli hefur verið opnuð inflúensumóttaka og er hún mönnuð heilbrigðisstarfsmönnum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ferðamenn eiga þess kost að leita þangað hafi þeir inflúensulík einkenni.






Tengdar fréttir

Grímur og sótthreinsunarsápur hafa rokið út

Andlitsgrímur og sótthreinsunarsápur hafa rokið út hér á landi eftir að fréttir af svínaflensu fóru að berast. Enginn hefur þó greinst með flensuna hér á landi en margir óttast hvað gerist ef svo fer.

Bandarískir svínabændur óhressir með svínaflensu

Tom Vilsack, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna, hefur bænheyrt þarlenda svínabændur og farið þess á leit við stjórnvöld að nafni svínaflensunnar alræmdu verði breytt í H1N1-veiran í stað þess að kenna hana við svín.

Barnið sem lést í Texas var frá Mexíkó

Nú er komið í ljós að barnið sem lést í Texas ríki af völdum svínaflensu var frá Mexíkó en foreldrar þess höfðu ferðast með það yfir landamærin til þess að leita læknisaðstoðar. Fyrr í dag var greint frá því að um væri að ræða fyrsta dauðsfallið í Bandaríkjunum af völdum svínaflensu. Barnið var tveggja ára gamalt.

Talsvert af Íslendingum býr í Mexíkó

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segist ekki hafa spurnir af því að einhverjir Íslendingar hafi verið að koma frá Mexíkó undanfarna daga. Rösklega 100 manns hafa látíst af völdum fuglaflensu undanfarna daga og hefur Alþjóða heilbrigðisstofnunin varað við mögulegum heimsfaraldri.

Skólum lokað vegna svínaflensu í Mexíkó

Heilbrigðisyfirvöld í Mexíkó og Bandaríkjunum leita nú að nýjum tilfellum af skæðri inflúensu sem hefur greinst í löndunum tveimur og hefur dregið minnst 20 til bana í Mexíkó.Óttast er að rekja megi nærri 50 dauðsföll til viðbótar einnig til sjúkdómsins.

Minnstar líkur á Íslandi

Minnstar líkur eru á að Ísland verði fyrir barðinu á svínaflensu af öllum Evrópulöndum, samkvæmt Paddy Power, stærsta veðmálafyrirtæki Írlands. Frá þessu segir á veðmálavefsíðunni Oddspreview.

Svínaflensa veldur vá gegn almannaheilsu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti nú í kvöld yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegna svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum.

Yfir 100 látnir úr svínaflensu í Mexíkó

Tala látinna úr svínaflensu í Mexíkó er komin upp í 103. Sóttvarnaryfirvöld hér á landi ákveða í dag hvernig brugðist verður við vá vegna flensunnar. Allir Íslendingar, sem nú eru staddir í Mexíkó, verða skoðaðir við heimkomuna en eftir því sem næst verður komist eru þeir allir við góða heilsu.

Enginn smitaður af svínaflensu á Íslandi

Sýni sem tekin hafa verið úr fimm einstaklingum vegna gruns um að þeir gætu verið með svínaflensu reyndust neikvæð þegar niðurstöður lágu fyrir í gær, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis.

Svínum slátrað í Egyptalandi

Viðbrögðin við svínaflensu eru ekki á sama veg í öllum ríkjum heims. Í Egyptalandi tóku stjórnvöld þá ákvörðun að slátra skyldi öllum svínum í landinu, en þau eru samtals 300 þúsund.

Sóttvarnarlæknir í viðbragðsstöðu vegna svínaflensu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin varaði í dag við mögulegum heimfaraldri svínaflensu. Sjúkdómurinn hefur dregið nærri sjötíu til dauða í Mexíkó síðan um miðjan mars. Sóttvarnarlæknir er í viðbragðsstöðu.

Ekki hægt að bólusetja fólk gegn svínaflensu

Ekki er hægt að bólusetja sig til að koma í veg fyrir að fá svínaflensu. Þegar er þó byrjað að þróa bóluefni en það getur tekið vikur og jafnvel mánuði. Íslendingar hafa tryggt sér ákveðinn forgagn að því lyfi þegar það verður til.

WHO íhugar að lýsa yfir næstefsta viðbúnaðarstigi

Fulltrúar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, segjast skrefi nær því að lýsa yfir næst efsta viðbúnaðarstigi vegna svínaflensunnar. Það þýðir að ekkert lát er á útbreiðslu sjúkdómsins. Íslensk kona í Mexíkó, þar sem sjúkdómurinn greindist fyrst, segir viðbúnað í landinu mikinn en hún sé ekki á leið heim í bráð.

Sjötíu manns hafa látist vegna svínaflensu í Mexíkó

Sérfræðingar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar eru búnir undir að þurfa að einangra með hraði hluta Mexíkó og Bandaríkjanna þar sem ný tegund svínaflensu hefur greinst í fólki. Talið er að flensan hafi dregið nærri sjötíu manns til bana í Mexíkó.

Aukinn viðbúnaðar vegna svínaflensu - komin til Bretlands

Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, hefur aukið viðbúnað sinn vegna farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins í Mexíkó. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað úr þriðja stigi í það fjórða en stigin eru alls sex. Faraldurinn hefur breiðst út og hefur nú fyrsta tilfellið verið greint í Bretlandi.

Möguleiki talinn á heimsfaraldri

Heilbrigðismál „Við erum að afla upplýsinga og fylgjast með, en eins og málum er háttað er ekki búið að breyta áhættumatinu. Það eru engin tilmæli um ferðatakmarkanir og við erum bara á sama stigi og þegar varað var við fugla­flensunni,“ segir Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá Landlæknisembættinu, um hugsanlegan svínaflensufaraldur.

Fleiri greinast með svínaflensu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti í gærkvöldi yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegn svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum.

Svínaflensa tefur frumsýningu X-Men

Frumsýningu hasarmyndarinnar X-Men Origins: Wolverine hefur verið frestað í Mexíkó vegna svínaflensunnar. Flest kvikmyndahús í landinu eru lokuð vegna flensunnar og óvíst er hvenær þau verða opnuð á nýjan leik.

Bretar panta 30 milljónir gríma

Breska heilbrigðisráðuneytið hefur pantað 30 milljónir gríma til að hylja vit fólks og verja það þannig fyrir svínaflensunni sem geisar í heiminum. Sérfræðingar hafa þó bent á að grímurnar veiti litla sem enga vörn gegn veirunni sem veldur svínaflensu.

Hvað er þessi svínaflensa?

Svínaflensa er smitandi öndunarsjúkdómur sem herjar yfirleitt á svín og orsakast af týpu af inflúensuveiru. Reglulega gengur um faraldur í svínum. Margar ólíkar gerðir eru til af sjúkdómnum og sú gerð sem núna gengur á milli er svokölluð H1N1 týpan.

Öllum svínum í Egyptalandi fargað

Heilbrigðisyfirvöld í Egyptalandi hafa fyrirskipað að öllum svínum í landinu skuli fargað vegna svínaflensunnar sem vekur ugg víða um heim. Í yfirlýsingu frá egypska heilbrigðisráðherrans segir að þetta sé gert í varúðarskyni.

Tveir Íslendingar rannsakaðir vegna gruns um svínaflensu

Tveir Íslendingar hafa verið rannsakaðir vegna gruns um að þeir hafi smitast af svínaflensu. Einstaklingarnir eru báðir nýkomnir frá Bandaríkjunum. Þetta kom fram á blaðamannafundi með Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sem nú stendur yfir. Tekið var fram að ekki þykir líklegt að mennirnir séu smitaðir af svínaflensunni og er þeim ekki haldið í einangrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×