Möguleiki talinn á heimsfaraldri 27. apríl 2009 05:30 Óbreytt áhættumat Haraldur segir engin tilmæli hafa borist um ferðatakmarkanir.
Heilbrigðismál „Við erum að afla upplýsinga og fylgjast með, en eins og málum er háttað er ekki búið að breyta áhættumatinu. Það eru engin tilmæli um ferðatakmarkanir og við erum bara á sama stigi og þegar varað var við fuglaflensunni," segir Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá Landlæknisembættinu, um hugsanlegan svínaflensufaraldur. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varaði í gær við mögulegum heimsfaraldri svínaflensu, en ríflega þúsund tilfelli hafa greinst í Mexíkó síðan í mars og sjúkdómurinn hefur dregið rúmlega 80 manns til dauða. Ellefu manns í Bandaríkjunum hafa greinst með flensuna, en enginn látist og átta skólabörn í New York eru í frekari rannsóknum vegna hugsanlegs smits. Svínaflensa er öndunarfærasjúkdómur í svínum. Óalgengt er að veiran smitist úr svínum í menn, en það hefur þó gerst í nokkrum tilfellum. Flensan sem er nú að breiðast út er hins vegar blanda af svínaflensu, hefðbundinni inflúensu og afbrigði fuglaflensu sem hefur hvorki greinst í mönnum né svínum áður. „Þegar þeir voru að finna þessa veiru í fólki voru engin tengsl manna við svín svo þetta var greinilega að berast manna á milli, sem er óvenjulegt og lyfti brúnum manna," útskýrir Haraldur. „Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna er að leggja drög að því að búa til bóluefni sem virkar á þessa veiru, en það er álitamál hvort okkar inflúensubóluefni virkar á þennan stofn. Þangað til treystum við á lyf eins og Tamiflu og Relenza sem virka vel," bætir hann við. „Við erum tilbúin til að breyta okkar áætlunum og grípa til ráðstafana við heimkomu Íslendinga frá áhættusvæðum eins og Mexíkó ef þess þarf. Það eru allir að gera sitt besta til að fá botn í þetta og við látum vita um leið og eitthvað kemur í ljós," segir Haraldur, en upplýsingar má nálgast á heimasíðu Landlæknisembættisins. - ag
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira