Innlent

Eignir Landsbankans ættu að vera fullnaðargreiðsla

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að afhenda hefði átt Bretum og Hollendingum eignir Landsbankans sem fullnaðargreiðslu vegna Icesave skuldbindinganna. Formaður Framsóknarflokksins vonar að Alþingi hafni samkomulaginu.

Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins lýst illa á það samkomulag sem nú liggur fyrir. Ekki sé tekið nægjanlega tillit til aðstæðna á Íslandi eins og lagt hafi verið upp með þegar samningaviðræður hófust og eins og Alþingi hafi gengið út frá þegar það samþykkti að ríkisstjórnin gengi til samningaviðræðna vegna Icesave.

Bjarni segir að þau drög sem lágu fyrir um samning við Breta í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, hafi byggst á kröfum viðsemjenda sem aldrei hafi staðið til að fallast á. Hann hefði viljað að hámarks greiðslur Íslendinga vegna Icesave yrðu aldrei meira en sem næmu einu prósenti af landsframleiðslu á ári. Þá hefði hann viljað að eignir Landsbankans í Bretlandi og Hollandi hefðu verið afhentar sem fullnaðargreiðsla fyrir skuldbindingunum.

Reyna hefði átt á lagalegan rétt Íslendinga

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segir að sér lítist afleitlega á samningsniðurstöðuna. Hann hafi verið miður sín vegna þessa frá í gærmorgun. Nú sé að sjá hvað Alþingi geri og hann treysti því að þingið staðfesti ekki fjárveitingu vegna málsins.

Þá segir Sigmundur að reyna hefði átt á lagalegan rétt Íslendinga sem væri sterkur í þessu máli. Þá væri pólitísk staða Íslendinga einnig sterk og samningsstaðan mun sterkari en þessi niðurstaða gefi til kynna.

Málið verður keyrt í gegnum Alþingi með ofbeldi

Þráinn Bertelsson þingmaður Borgarahreyfingarinnar segir niðurstöðuna hræðilega. Þetta sé sennilega stærsta fjárhagsskuldbinding í Íslandssögunni sem gengið sé frá í leyni. Síðan standi til að keyra málið í gegnum Alþingi með ofbeldi.

Þráinn er sömu skoðunar og formaður Sjálfstæðisflokksins um að afhenda hefði á Bretum og Hollendingum eignir Landsbankans sem fullnaðargreiðslu.

„Síðan hefði átt að bjóða þeim alla mögulega aðstoð yfirvalda og lögreglu hérna við að koma í hendur þeirra þeim glæpamönnum sem komu okkur í þessa aðstöðu til að byrja með," sagði Þráinn.


Tengdar fréttir

Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum

Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli.

Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands

Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag.

Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð

Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn.

Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári

Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár.

Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina

Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn.

Samkomulagið veitir ríkissjóði skjól í sjö ár

Ríkisstjórnin telur að 33 til 170 milljarðar gætu fallið á ríkissjóð eftir sjö ár vegna Icesave skuldbindinga í Bretlandi og Hollandi sem samtals eru upp á 660 milljarða króna. Leiðtogar stjórnarflokkanna segja mikilvægt að samkomulagið skapi ríkissjóði algert skjól í sjö ár en á þeim tíma eru lán vegna Icesave afborgunarlaus.

Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur.

Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð

Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt.

Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar.

12 milljónir króna á fjölskyldu

Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu.

Bretar fagna Icesave samkomulaginu

Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV.

Samkomulagið betra en fyrri drög

Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð.

Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave

Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×