Erlent

Drengurinn var ekki í loftbelgnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Drengurinn var sagður vera fastur í loftbelgnum. Mynd/ AFP.
Drengurinn var sagður vera fastur í loftbelgnum. Mynd/ AFP.
Loftbelgurinn sem sveif yfir Colorado fylkið og talið var að sex ára drengur væri í er lentur. Drengurinn reyndist ekki vera í loftbelgnum

Haft var eftir lögreglumanni í Weld sýslunni í Colorado að systkini drengsins hafi séð hann klifra upp í blöðruna áður en hún tókst á loft. Engar líkur væru á því að drengurinn hefði farið úr blöðrunni því að hún væri lokuð.

Lögreglan telur að drengurinn hafi ekki fallið úr loftbelgnum heldur hafi hann farið úr honum áður en hann fór á loft. Drengsins er nú leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×