Erlent

Hvetja Palestínumenn til að sniðganga kosningar

Hamas samtökin hvetja Palestínumenn á Gaza ströndinni til að sniðganga kosningar sem Mahmoud Abbas hefur boðað til eftir áramót.
Hamas samtökin hvetja Palestínumenn á Gaza ströndinni til að sniðganga kosningar sem Mahmoud Abbas hefur boðað til eftir áramót. Mynd/AP
Hamas samtökin hvetja Palestínumenn á Gaza ströndinni til að sniðganga forseta- og þingkosningar sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtoga Fatah samtakanna, hefur boðað til í janúar á næsta ári. Samtökin segja að kosningarnar sé ólöglegar. Hamas samtökin hröktu Fatah frá Gaza ströndinni með vopnavaldi árið 2007.

Fatah samtökin hafa undanfarna áratugi verið stærstu stjórnmálasamtök Palestínumanna. Þau hafa þó misst töluvert fylgi undanfarin ár og hefur spilling veikt stöðu hreyfingarinnar, en frá því að Hamas, samtök herskárra múslima, komust til valda á Gaza ströndinni fyrir tveimur árum hafa völd Fatah verið bundin við Vesturbakkann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×