Erlent

Eiginkona Tsvangirai lést í bílslysi í dag

Morgan Tsvangirai
Morgan Tsvangirai

Robert Mugabe forseti Zimbabwe heimsótti forsætisráðherrann Morgan Tsvangirai á sjúkrahús en ráðherrann lenti í bílslysi í dag. Eiginkona ráðherrans lést í bílslysinu en risastór trukkur keyrði á bifreiðar Tsvangirai með fyrrgeindum afleiðingum.

Hjónin voru á leið að heimili sínu úti fyrir höfuðborginni Harare þegar trukkurinn, sem kom úr gagnstæðri átt, fór yfir á öfugan vegarhelming. Í síðasta mánuði myndaði Tsvangirai sem er leiðtogi Demókrataflokksins í Zimbabwe samsteypustjórn með forseta landsins Robert Mugabe.

Ekki er vitað hvað fór þeirra á milli á sjúkrahúsinu en Tsvangirai mun ekki vera alvarlega slasaður eftir slysið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×