Erlent

Fjögurra milljóna fargjald fyrir hund

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Boxer hundur af sömu tegund og Orchuk. Mynd/Getty Images
Boxer hundur af sömu tegund og Orchuk. Mynd/Getty Images
Sextug ísraelsk kona, sem gengur undir nafninu Rivkah, greiddi 32 þúsund bandaríkjadali, andvirði um fjögurra milljóna króna, svo hundurinn hennar gæti flogið á fyrsta farrými með henni frá Parísar til Tel Aviv.

Flugfélagið El Al þurfti að fjarlægja nokkur sæti til að rýma fyrir hundabúrinu, auk þess sem Rivkah borgaði flugfarið fyrir dýralækni.

„Það hvarflaði ekki að mér að skilja Orchuk litla eftir í farangursgeymslunni," segir Rivkah í samtali við vefútgáfu Telegraph.

Hún vildi að sögn ekki ræða greiðsluna sem hún innti af hendi, enda taldi hún ekkert verð of hátt.

„Hann er barnið mitt, ekki hundur. Og hann á það besta skilið," segir Rivkah sem hefur átt hundinn í rúm átta ár.

Talsmaður El Al sagði í samtali við ísraelska dagblaðið Hareetz að það hefði aldrei fengið viðlíka beiðni áður.

„En eftir að konan skýrði hið sérstaka samband hennar við hundinn fyrir okkur og sagðist reiðubúin að greiða aukalega til að fljúga með honum féllumst við á það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×