Kleinuhringir til að þreyja versta dag ársins Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. janúar 2009 07:36 MYND/Photobucket.com
Kleinuhringjaát og ræktun brómberja er meðal þess sem nokkrir þekktir Bretar gera til að koma sér í gegnum ömurlegasta dag ársins sem var í gær. Það var doktor Cliff Arnall, sálfræðingur og fyrrum kennari við Háskólann í Cardiff í Wales, sem reiknaði það út á dögunum að miðað við veðurfar, myrkur, jólavísareikninga og fleira væri mánudagurinn í síðustu heilu vikunni í janúar ömurlegasti dagur ársins. Sá dagur var einmitt í gær svo nú er hægt að fara að brosa framan í lífið aftur. Blaðamenn Telegraph tóku sig til og spurðu nokkra þekkta einstaklinga hvað þeir gerðu til að koma sér heilum gegnum þennan andstyggilega dag sem kallast upp á engilsaxnesku Blue Monday. Óhætt er að segja að þar hafi kennt ýmissa grasa og fólk halli sér að ólíklegustu hlutum þennan gráa mánudag. Einn nefndi sérstaklega óholla kleinuhringi, annar heimsækir uppáhaldskirkjugarðinn sinn, fyrir þá sem eiga sér einn slíkan, og sá þriðji fer hreinlega í golf. Önnur meðul voru fuglaskoðun, kaup á hreinum óþarfa, súkkulaðibúðingur og síðast, en alls ekki síst, flaska af Sainsbury´s-kampavíni. En bara hálf.
Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Sjá meira