Erlent

Bretaprins bruðlar

Andrew Bretaprins er gagnrýndur fyrir að bruðla.
Andrew Bretaprins er gagnrýndur fyrir að bruðla. Mynd/AP
Andrew Bretaprins er gagnrýndur af stjórnmálamönnum og fjölmiðlum fyrir að fara illa með opinbert fé en hann flaug nýverið á einkaþotu til að hitta vin sinn í Azerbaijan.

Ferðin kostaði rúmlega 60 þúsund pund en upphæðin samsvarar rúmum 12 milljónum íslenskra króna. Ferðinni var ætlað að styrkja viðskiptatengsl Bretlands og Azerbaijan.

Prinsinn flaug með glæsilegri einkaþotu til Azerbaijan þar sem hann dvaldi í þrjá daga. Þetta var í sjötta sinn sem hann heimsækir landið á einungis fimm árum.

Talsvert hefur verið fjallað um tengsl Andrews við helstu áhrifamenn landsins og hann hlotið gagnrýni fyrir. Andrew er til að mynda góður vinur forsetans, Ilham Aliyve, sem og ríkasta manns landsins, Jahangir Askerov.

Norman Baker, þingmaður Frjályndra demókrata, er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt ferðina. Hann segir kostnað almennings vegna bresku konungsfjölskyldunnar, og ýmissa gæluverkefni hennar, aukast á ári hverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×