Erlent

Mótmælendur dæmdir til dauða í Íran

Frá mótmælunum í júní. Mynd/AP
Frá mótmælunum í júní. Mynd/AP
Þrír Íranir hafa verið dæmdir til dauða fyrir hafa tekið þátt í mótmælunum sem brutust út eftir forsetakosningarnar í sumar þegar Mahmoud Amadinejad var endurkjörinn forseti landsins. Því var haldið fram að hann hefði unnið með víðtæku kosningasvindli.

Fjölmargir voru handteknir í kjölfar mótmælaöldunnar og átakanna sem brutust út og að minnsti 30 létust. Tugir manna hafa lagt fram kærur vegna slæmrar meðferðar sem þeir fengu eftir að þeir voru handteknir.

Þremenningarnir eru þeir fyrstu sem fá dóm vegna mótmælanna en yfir 100 Íranir eru ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í mótmælunum eða skipulagt þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×