Erlent

Obama fagnar áfangasigri í hryðjuverkastríðinu

Najibullah Zazi
Najibullah Zazi

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, sagði í ræðu sinni á landsráðstefnu gegn hryðjuverkum, að áfangasigur hefði náðst í hryðjuverkastríðinu. Hann sagði að hryðjuverkasamtökin Al Kaída hefði orðið fyrir miklu áfalli eftir að bandamenn hafi komið í veg fyrir röð hryðjuverkatilrauna.

Þá minntist hann sérstaklega á Najibullah Zazi í því samhengi. Hann var handtekinn grunaður um að hafa skipulagt hryðjuverk í neðanjarðarlestakerfi New York borgar.

Hann var handtekinn ásamt meintum samverkamönnum. Talið er að hann hafi hlotið sérþjálfun hjá Al Kaída í Pakistan. Sjálfur neitar hann þó ásökunum.

Obama sagði í ræðu sinni að það væru raunverulegir sigrar að vinnast í stríðinu gegn hryðjuverkum. Sjálfur minntist hann þó ekki á stríðið í Afganistan og áætlun ríkisstjórnar gegn sívaxandi hernaði Al Kaída í Pakistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×