Erlent

Stalínmálinu vísað frá dómi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Yossif V. Dzhugashvili var betur þekktur undir nafninu Josef Stalin. Mynd/ AFP.
Yossif V. Dzhugashvili var betur þekktur undir nafninu Josef Stalin. Mynd/ AFP.
Dómstóll í Moskvu hefur vísað frá kæru sem barnabarn Jósefs Stalín lagði fram gegn rússnesku dagblaði.

Barnabarnið sem heitir Yevgeny Dzugashvili sakar blaðið Novaya Gazeta um að sverta minningu Stalíns í grein þar sem fullyrt var að hann hafi fyrirskipað aftökur sovéskra borgara. Dzugashvili segir að slíkar fullyrðingar séu hrein lygi og hafði farið fram á afsökunarbeiðni og skaðabætur frá blaðinu.

Rússneski dómstóllinn hefur ekki útskýrt hvers vegna málinu var vísað frá en skýringar á því verða gefnar síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×