Erlent

Tilfinninganæmur Cameron á flokksfundi Íhaldsmanna

David Cameron flokksleiðtogi Íhaldsmanna.
David Cameron flokksleiðtogi Íhaldsmanna.

David Cameron viðurkenndi í mikilvægri ræðu á flokksfundi Íhaldsmanna í kvöld að fráfall sonar síns hefði fengið hann til þess að efast um pólitíska framtíð sína. Þetta sagði Cameron í kvöld en kosningaslagurinn í Bretlandi er í fullum gangi þessa dagana.

Flokksfundurinn var þéttsetinn og þar sagði Cameron meðal annars:

„Þegar svo stór hluti af lífi þínu tekur skyndilega enda skiptir ekkert annað máli. Það er eins og jörðin hætti að snúast og klukkan hætti að ganga. Og þegar þetta fer aftur í gang, nokkrum vikum síðar, spyrðu sjálfan þig ítrekað: vil ég virkilega gera þetta? Þú hugsar um það sem þú virkilega trúir á og það sem virkilega heldur þér gangandi."

„Ég veit hvað heldur mér gangandi. Hún situr þarna og ég er ofboðslega stoltur yfir því að kalla hana eiginkonu mína."

Sex ára fjölfatlaður sonur Camerons lést í febrúar á þessu ári.

Í ræðunni kom einnig fram að fyrrum yfirmaður hermála í Bretlandi, Richard Dannat, verði ráðgjafi Íhaldsmanna í varnarmálum og verði síðar hluti af lávaraðadeildinni.

Ef Íhaldsflokkurinn vinnur kosningarnar, sagði Cameron að Richard gæti orðið hluti af ríkisstjórninni.

Ef marka má viðbrögð stjórnmálaskýrenda í Bretlandi virðist ræðan hafa farið vel í kjósendur. Menn hafa þó áhyggjur af því að ræða Camerons hafi verið of hnitmiðuð á ákveðinn hóp, en ræða keppinautarins Gordons Brown, er talin hafa náð til fleiri ólíkra hópa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×