Erlent

Skógareldar í Kalíforníu

Miklir skógareldar hafa blossað upp í Kalíforníu enn eina ferðina og berjast þúsundir slökkviliðsmanna nú við eldana. Tvö þúsund manns hafa þegar þurft að yfirgefa heimili sín.

Eldsins varð fyrst vart á miðvikudag en Santa Cruz sýsla hefur orðið verst úti og þar hafa um tvö þúsund og áttahundruð ekrur orðið eldinum að bráð. Miklir þurrkar hafa verið á svæðinu undanfarnar vikur og erfitt er oft fyrir slökkviliðsmenn að ná til eldsins sem brennur í bröttu fjalllendi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×