Erlent

Segist ekki hafa eyðilagt hjónaband Berlusconi

Noemi Letizea með mynd af forsætiráðherranum.
Noemi Letizea með mynd af forsætiráðherranum.

Unglingsstúlka sem spilaði stórt hlutverk í óánægju Silvio Berlusconi í sumar þvertekur fyrir að hafa eyðilagt hjónaband forsætisráðherrans.

Hin átján ára gamla Noemi Letizia, sjónvarpsstjarna og næstum því módel, varð heimsfræg fyrir fimm mánuðum þegar í ljós kom að hinn 72 ára gamli Berlusconi var heiðursgestur í afmælisveislu hennar.

Síðan þá hefur spurningum um hvernig þau þekkjast rignt yfir forætisráðherrann og eiginkona hans hefur sagt samband Berlusconi við stúlkuna hafa spilað stórt hlutverk í skilnaði þeirra.

Þegar það fréttist að hann hefði verið í afmælisveislu stúlkunnar, og gefið henn fokdýrt hálsmen með gulli og demöntum, sagði eiginkonan að nú væri komið nóg.

Í viðtali sem birtist í sjónvarpsþætti á Ítalíu í kvöld þvertekur stúlkan hinsvegar fyrir að hafa átt þátt í skilnaði Berlusconi.

„Þetta er hneykslismál, en veruleikinn er annar," segir stúlkan í viðtalinu.

„Ég vil leiðrétta ýmsan misskilning. Það væri betra ef fólk notaði aðeins heilann og hugsaði aðeins. Allir sjá að ég er ekki ástæða skilnaðarins. Hvenrig getur afmælisveisla átján ára gamallar stúlku eyðilagt hjóanband? Ef það er ástæðan, hvernig hjónaband var þetta þá? Ég hef ekkert með þetta að gera."

„Það sem Veronica (eiginkonan) hefur sagt angrar mig ekki. Þetta eru hennar eigin fjölskylduvandamál. Ég ætti ekki að vera dæmd fyrir þau."

Noemi neitaði þó að útskýra hvernig faðir hennar þekkir forsætisráðherrann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×