G20: 250 milljarðar dollara í björgunarpakka Óli Tynes skrifar 2. apríl 2009 11:27 Leiðtogar tuttugu helstu iðnvelda heims eru nú samankomnir í London. MYND/AP
Leiðtogar 20 helstu iðnvelda heims eru nálægt því að ná samkomulagi um 250 milljarða dollara björgunarpakka til þess að liðka fyrir alþjóðaviðskiptum. Þeir vilja einnig herða eftirlit með fjármálastofnunum. Þessa 250 milljarða dollara á að nota á næstu tveimur árum til þess að liðka fyrir viðskiptum í gegnum afurðalána- og fjárfestingastofnanir sem og þróunarlánabanka. Helsti þröskuldurinn í baráttunni gegn kreppunni er að bankar eru dauðhræddir við að lána peninga. Millibankalán hafa nánast lagst af og allir halda að sér höndunum. Þessi lausafjárkreppa veldur því að fyrirtækjum um allan heim er að blæða út. Ríkisstjórnir um allan heim hafa ausið milljörðum og aftur milljörðum út í atvinnulífið. Það hefur vissulega hjálpað, en það tekur tíma að skila sér. Mervyn King seðlabankastjóri Bretlands hefur sagt að forsenda fyrir uppsiglingu sé að bankarnir hefji aftur eðlilega lánastarfsemi. En forsenda fyrir því að bankarnir byrji aftur að lána er traust á því að hjólin fari þá að snúast aftur. Þetta er nokkurskonar vítahringur sem iðnveldin vonast til þess að geta rofið meðal annars með fyrrnefndu framlagi. Hert eftirlit með fjármálastofnunum er einnig ofarlega á lista iðnveldanna tuttugu. Allir eru sammála um að þær hafi fengið alltof frítt spil og meira eftirlits sé þörf í framtíðinni. Menn eru hinsvegar ekki alveg sammála um hversu langt á að ganga í því efni.
Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Albanese segir Netanyahu í afneitun Erlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Erlent Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Innlent Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Erlent Fleiri fréttir Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Sjá meira