Erlent

Berlusconi þarf að mæta fyrir dóm

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu.
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu.
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, þarf að mæta fyrir dóm í nóvember vegna áskana um stórfelld skattsvik í tengslum við fjölmiðlafyrirtæki hans, Mediaset. Annað dómsmál vofir yfir forsætisráðherranum sem sagður er hafa mútað breskum lögfræðingi fyrir 12 árum til að segja ósatt í máli sem stóð yfir gegn honum vegna spillingarákæru.

Fyrr í mánuðinum kvað stjórnlagadómstóll Ítalíu upp þann úrskurð að

lög sem tryggðu Berlusconi friðhelgi fyrir dómstólum brytu í bága við stjórnarskrá landsins. Úrskurður stjórnlagadómstólsins gerir það að verkum að saksóknarar geta haldið áfram dómsmálum sem höfðuð voru á hendur forsætisráðherranum áður en lögin voru sett.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×