Erlent

Pelosi kynnti frumvarp um umbætur

Nancy Pelosi fyrir utan þinghúsið í Washington í dag. Mynd/AP
Nancy Pelosi fyrir utan þinghúsið í Washington í dag. Mynd/AP Mynd/AP
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, lagði í dag fram frumvarp Barack Obama, Bandaríkjaforseta, um umbætur í heilbrigðiskerfinu. Frumvarpið miðar að því að lækka útgjöld og gera heilbrigðistryggingar ódýrari fyrir landsmenn.

Pelosi sagði að um mikil tímamót væri að ræða þar sem frumvarpið snerti tugmilljónir Bandaríkjamanna. Verði það að lögum tryggi það aðgang 96% landsmanna aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Tillögurnar hafa mætt talsverðri andstöðu meðal þingmanna Repúblíkanaflokksins sem og einhverja þingmanna Demókrataflokksins. Sjálfur hefur Obama aftur móti sagt að núverandi kerfi sé of dýrt og þungt í vöfum. Frumvarpið komi til með að spara hinu opinbera háar upphæðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×