Erlent

Fort Hood: Búið að bera kennsl á morðingjann

Skotmaðurinn sem hefur verið felldur eftir að hafa myrt 12 manns og sært yfir 30 í Fort Hood herstöðinni var sjálfur yfirmaður í hernum og hét Major Malik Nidal Hasan. Hann var skotinn þegar hann sjálfur skaut á hermenn sem biðu eftir að vera skráðir í flug til Íraks eða Afganistan. Sjálfur hefur Malik, samkvæmt Fox News, gagnrýnt herinn opinberlega.

Tveir aðrir hafa verið handteknir og eru grunaður um aðild að árásinni. Ekki er ljóst hver þeirra þáttur er.

Hassan virðist hafa verið vel vopnaður með tvær skammbyssur. Hann á að hafa veitt eins mögulega mikinn skaða og hann gat en sjálfur er Hassan vel þjálfaður hermaður.

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama hélt ræðu í kvöld þar sem hann sagðist vera verulega brugðið eftir árásina. Hún væri hryllileg.

Ekki er vitað hvað Malik gekk til með árásinni.


Tengdar fréttir

12 látnir - 31 særðir eftir skotárás í Bandaríkjunum

12 einstaklingar eru látnir og 31 er slasaður eftir skotárásirnar sem átti sér stað í Fort Hood klukkan 13:30 að staðartíma. Einn árásarmannanna hefur verið skotinn til bana og búið er að handtaka tvo aðra menn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×