Maður þroskast hægt og rólega í þessu starfi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. júní 2009 07:00 Ólafur Þórðarson
Fylkir vann á fimmtudag einhvern ótrúlegasta sigur í sögu íslenskrar knattspyrnu er liðið mætti Stjörnunni í 32-liða úrslitum VISA-bikars karla. Lið Fylkis var nær meðvitundarlaust í upphafi leiks og lenti fljótlega þrem mörkum undir. Héldu margir þá að dagskránni væri lokið en leikmenn Fylkis voru ekki þar á meðal. Þeir spýttu heldur betur í lófana og svöruðu mörkunum þremur frá Stjörnunni með sjö mörkum og unnu ótrúlegan stórsigur, 7-3. „Strákarnir rifu sig upp á rassgatinu og keyrðu svo yfir Stjörnuna. Strákarnir sýndu enn og aftur að þeir hafa mikinn karakter og það var frábært að verða vitni að þessu. Þetta hefur verið frábær skemmtun fyrir áhorfendur sem og leikmenn að fá að upplifa þetta. Þessi leikur sýndi svo ekki verður um villst að það er allt hægt í fótbolta," sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, en hann hefur heldur betur komið með ferska strauma í Árbæinn. Liðið er ekki bara komið í sextán liða úrslit í bikarkeppninni heldur situr það þess utan í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar, hefur unnið fjóra leiki, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum leik. „Ég þakka strákunum þetta góða gengi. Þeir eru duglegir, leggja sig fram og vilja ná árangri. Það er nákvæmlega það sem þetta snýst um. Okkur gekk vel í undirbúningsmótunum og þessi spilamennska er bara beint framhald af því sem við vorum að gera í vor. Það er samt mikið eftir af mótinu og spurning hvort þessir ungu strákar halda þetta út," sagði Ólafur sem hrósar strákunum sínum í hástert og segist ekki hafa neina trú á öðru en að þessir strákar muni spýta í lófana þegar á móti blæs. Ólafur er gamall refur í boltanum og kemur aftur inn í þjálfunina eftir árshlé en þar áður var hann á hliðarlínunni hjá Fram. Er hann mikið breyttur sem þjálfari? „Það eru alltaf ákveðnar áherslubreytingar hjá manni á hverju ári. Maður er alltaf að spá og spekúlera í því sem maður er að gera. Maður róast og þroskast með aldrinum, hægt og rólega reyndar," sagði Ólafur léttur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Enski boltinn Fleiri fréttir Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Sjá meira