Erlent

Jöklar á suðurskautinu bráðna hraðar en talið var

Einn stærsti jökull Suðurskautslandsins bráðnar fjórum sinnum hraðar en fyrir tíu árum. Breska ríkissútvarpið greinir frá þessu í dag og vitnar í skýrslur vísindamanna birtar eru í ritinu Geophysival Research Letters.

Pine Island jökullinn lækkar nú um 16 metra á ári og frá árinu 1995 hefur hann lækkað um 90 metra að sögn vísindamannanna, sem hefur haft umtalsverð áhrif á hækkun yfirborðs sjávar. Útreikningar sem gerðir voru á bráðnun jökulsins fyrir fimmtán árum síðan gáfu til kynna að hann myndi hverfa eftir 600 ár en nýju upplýsingarnar breyta þeim útreikningum verulega og nú er talið að jökullinn verði ekki til eftir hundrað ár.

Vísindamennirnir segja að jökullinn bráðni hraðast inni á miðri jökulbreiðunni og því óttast menn að hann kunni að brotna upp og hafa áhrif á ísbreiðuna fyrir innan jökulinn sem er á vesturströnd Suðurskautsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×