Bretar réttlæta beitingu hryðjuverkalaganna 23. mars 2009 05:00 Austin Mitchell, þingmaður Verkamannaflokksins og formaður Íslandstengslanefndar breska þingsins, tekur við undirskriftalista indefence.is úr hendi Lukku Sigurðardóttur í gervi íslensku fjallkonunnar. Ljósmynd/SHH/indefence.is „
Forsvarsmenn breskra stjórnvalda, þar með taldir þingmenn úr báðum deildum breska þingsins, halda fast við þá afstöðu að það hafi verið fyllilega réttlætanlegt að beita umdeildum hryðjuverkavarnalögum til að frysta eigur Landsbankans og íslenskra stjórnvalda í Bretlandi í því skyni að verja hagsmuni breskra sparifjáreigenda.“ Þetta segir Ólafur Elíasson, einn talsmanna Indefence-hópsins svonefnda, eftir fund sem hópurinn átti í þinghúsinu í Lundúnum fyrr í vikunni. Á fundinum afhenti Lukka Sigurðardóttir þær rúmlega 83.000 undirskriftir sem söfnuðust í vetur á vef indefence.is við mótmælayfirlýsingu við beitingu hryðjuverkalaganna. Við undirskriftunum tók Austin Mitchell, þingmaður Verkamannaflokksins og formaður tengslanefndar breska þingsins við Alþingi. Ólafur segir að á blaðamannafundi sem haldinn var í þinghúsinu hafi verið lesin upp ályktunin sem skrifað var undir í söfnuninni, en þar er beiting hryðjuverkalaganna fordæmd. Talsmenn hópsins röktu hvernig málavextir horfðu við Íslendingum, þar á meðal hvernig æðstu ráðamenn Breta hefðu beitt sér af hörku í áróðri gegn málstað Íslendinga, svert orðspor þjóðarinnar og valdið henni ómældu tjóni. Ítrekuðu þeir ósk þeirra er skrifuðu undir mótmælayfirlýsinguna um að bresk stjórnvöld bæðust afsökunar á þessu framferði sínu svo að leggja mætti þennan ljóta kafla í samskiptum þjóðanna að baki og hægt yrði að snúa sér að því að byggja þau samskipti upp á betri grunni. Mitchell sagðist harma þessa atburðarás. En hann og aðrir viðmælendur hópsins, þar á meðal háttsettur fulltrúi úr utanríkisráðuneytinu, báru fyrir sig að bresk stjórnvöld hefðu „ekki átt annarra kosta völ“ en að grípa til þessara hryðjuverkalaga til að verja hagsmuni breskra sparifjáreigenda í íslensku bönkunum. Þessari fullyrðingu andmæltu breskir lögmenn sem voru í fylgd Indefence-manna. Að þeirra sögn hefði alls ekki þurft að beita þessum harkalegu aðferðum; næg önnur úrræði hefðu verið fyrir hendi til að verja hagsmuni sparifjáreigenda. Ólafur segir hópinn einnig hafa spurt bresku þingmennina hvort þeir hefðu heyrt að einhverjar aðrar ástæður en vernd sparifjáreigenda kynni að hafa legið að baki ákvörðuninni um beitingu hryðjuverkalaganna, eins og sögusagnir hefðu heyrst um á Íslandi. Við það könnuðust þeir ekki, sem væri í samræmi við það sem fram hefur komið í umræðum um málið á breska þinginu. Þingmennirnir hefðu hins vegar boðist til þess að koma fyrirspurn um málið á framfæri í þinginu, og segir Ólafur hópinn ætla að þiggja það boð. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Sjá meira